27.05.2014 15:13
Vík frá Lækjamóti 4.vetra í 8,19 fyrir hæfileika!
Í dag var sýnd á kynbótasýningu á Sauðárkróki hryssan Vík frá Lækjamóti. Vík er fædd 2010 og því 4.vetra undan Breytingu frá Lækjamóti og Ómi frá Kvistum. Ræktandi og eigandi er Þórir Ísólfsson.
Vík gerði sér lítið fyrir og fór í 8,19 fyrir hæfileika, 7,75 fyrir byggingu og 8,02 í aðaleinkunn sem þýðir að hún er komin með farseðil á Landsmót í sumar!
Vík hefur frá upphafi tamningar verið einstaklega geðgóð, gangviss og hreyfingarmikil. Haffí tamdi hana og þjálfaði í allan vetur en Ísólfur hefur síðasta mánuðinn tekið við þjálfuninni á henni og sýndi hana í dag.
Yfirlitssýning fer fram á föstudaginn og verður vonandi hægt að ná nokkrum myndum af gullmolanum
sköpulag: hæfileikar:
höfuð: 7,0 tölt: 8,5
háls/herðar/bógar: 8,5 brokk: 8,0
bak og lend: 7,5 skeið: 7,5
samræmi: 8,0 stökk: 8,0
fótagerð: 7,0 vilji og geðslag: 9,0
réttleiki: 7,5 fegurð í reið: 8,0
hófar: 8,0 fet: 8,0
prúðleiki: 6,0 hæfileikar: 8,19
Sköpulag: 7,75 hægt tölt: 7,5 hægt stökk 7,5