12.10.2013 22:15

Stóðréttir, frumtamningar, fortamningar já og eitt hús ;)

Á haustin fer fram fjölbreytt vinna í hesthúsinu, keppnishestarnir eru í fríi en ungu hrossin fá meiri tíma. Frá því í ágúst höfum við verið að frumtemja 2010 árganginn og eru þar mjög spennandi tryppi.  Mikil tilhlökkun fylgir því síðan að fá stóðið heim af Víðidalstunguheiði en þau komu heim um síðustu helgi þegar ein skemmtilegasta helgi ársins fór fram, stóðréttarhelgin.  Í kjölfarið tókum við á hús tryppi fædd 2011 til að fortemja í nokkra daga. Þessa dagana eru svo meira tamin hross að koma inn og allt að komast á fullt.

 

Frumtamningar hafa gengið vel í haust, Anna-Lena hér á Freyðisdóttur sem heitir Halla Ísey (eigandi Guðmar Hólm)

 

Gott að færa inni æfingarnar líka út á opið svæði. Anna-Lena hér að temja Hafdísi frá Lækjamóti f. Ómur frá Kvistum m. Valdís frá Blesastöðum 1A

Stóðið rekið til réttar fyrsta laugardag í Október

 

Það voru margir góðir vinir á svæðinu til að hjálpa til og njóta með okkur. Þeir voru að sjálfsögðu merktir með LM svo fljótlegt væri að finna þá ;)

Nú standa yfir fortamningar á 2 vetra tryppunum. Þessi foli heitir Már frá Gauksmýri f. Sindri frá Leysingjastöðum m: Mynt frá Gauksmýri

Þetta haustið er einnig nóg að gerast í byggingum, reiðhöllin að rísa upp úr jörðinni og styttist í að hesthúsbitarnir rísi.

Heilmikið gerist því á hverjum degi á Lækjamóti, alltaf líf og fjör :)

 

 

 

 

Flettingar í dag: 265
Gestir í dag: 74
Flettingar í gær: 561
Gestir í gær: 86
Samtals flettingar: 219240
Samtals gestir: 35457
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 12:40:39
LÆKJAMÓT  |  531 HVAMMSTANGI - ÍSLAND  |  +354 4512570  | [email protected]