12.08.2013 21:22

Skemmtilegt mót á Einarsstöðum

Á meðan margir hestamenn fylgdust með úrslitum á heimsmeistarmóti íslenska hestsins í Berlín skelltum við hjónin á Lækjamóti II okkur í Þingeyjasýsluna til að keppa á stórmóti Þjálfa á Einarsstöðum. Skemmtileg stemming var á mótinu og margir áhorfendur í brekkunni enda fjölmargir sem komu ríðandi á mótið og gistu í tjöldum. 
Við höfðum með okkur sex hross til að keppa á og komum við til baka með 8 verðlaun svo það er óhætt að segja að vel hafi gengið emoticon

Ísólfur og Kristófer sigruðu B-flokk gæðinga með 8,68 og hlutu þeir einnig veglegan farandgrip fyrir hæstu einkunn á mótinu. 

Vigdís og Sögn sigruðu b-úrslitin í B-flokki og fóru upp í 5.sæti í a-úrslitum með 8,46. Þær voru einnig valdar glæsilegasta parið á mótinu. 


B-flokkur gæðinga A-úrslit

1Kristófer frá Hjaltst.hvÍsólfur Líndal8,68
2Vísir frá ÁrgerðiStefán Birgir Stefánsson8,51
3Fróði frá AkureyriÞorbjörn Hreinn Matthíasson8,50
4Gullinstjarna frá HöfðaÞór Jósteinsson8,47
5Sögn frá LækjamótiVigdís Gunnarsdóttir8,46
6Bessi frá SkriðuAndrea Bang Kjelgaard8,44
7Saga frá SkriðuViðar Bragason8,30
8Eldjárn frá Ytri BrennhóliErla Birgisdóttir8,20

Í A-flokki gæðinga keppti Ísólfur á Sólbjarti frá Flekkudal og Gandálfi frá Selfossi, kom þeim báðum í a-úrslit, Sólbjarti í 7.sæti og Gandálfi í 2.sæti. Því fór svo að Vigdís keppti á Sólbjarti í úrslitunum sem var frábær reynsla fyrir knapann, enduðu þau í 8.sæti. Ísólfur og Gandálfur áttu í harðri toppbaráttu, enduðu í 2.sæti með 8,56.

A-flokkur gæðinga A-úrslit
1Freyja frá AkureyriÞorbjörn Hreinn Matthíasson8,63
2Gandálfur frá SelfossiÍsólfur Líndal Þórisson8,56
3Frami frá ÍbíshóliGuðmar Freyr Magnússon8,49
4Tíbrá frá Litla-DalÞórhallur Þorvaldsson8,48
5Elding frá BarkáÞór Jósteinsson8,46
6Aþena frá AkureyriBjörgvin Daði Sverrisson8,45
7Prati frá EskifirðiSveinn Ingi Kjartansson8,40
8Sólbjartur frá FlekkudalVigdís Gunnarsdóttir8,28

Í tölti mættum við svo með Gulltopp frá Þjóðólfshaga og Björk frá Lækjamóti og svo fór að Ísólfur og Gulltoppur sigruðu töltið nokkuð örugglega og Vigdís og Björk höfnuðu í 4-5.sæti. Ekki slæmur árangur hjá slaktaumatölturunum.

TÖLT   A-úrslit
1Gulltoppur frá ÞjóðólfshagaÍsólfur Líndal Þórisson7,83
2Saga frá SkriðuÞór Jósteinsson7,33
3Binný frá BjörgumViðar Bragason7,00
4Þerna frá HlíðarendaGuðrún Dögg Sveinbjörnsdóttir6,67
5Björk frá LækjamótiVigdís Gunnarsdóttir6,67
6Björg frá BjörgumFanndís Viðarsdóttir6,50

Þar sem við hjónin vorum bæði svo upptekin að keppa þá eigum við engar myndir frá mótinu en hugsanlega verða einhverjar myndir sýnilegar á heimasíðu Þjálfa en þar má nú finna öll úrslit mótsins. http://thjalfi.123.is/

Guðmar stóð sig frábærlega eins og alltaf á þessu mótastandi foreldranna, beið rólegur meðan við kepptum og hljóp svo til okkar þegar verðlaunaafhendingin fór fram.  Hann bíður nú spenntur eftir næstu helgi þegar fram fer íþróttamót Þyts og boðið er upp á pollaflokk en hann og Rökkvi ætla að sjálfsögðu að mæta þangað! emoticon

Guðmar slakar á yfir DVD á leiðinni heim eftir skemmtileg hestamót 
Flettingar í dag: 73
Gestir í dag: 15
Flettingar í gær: 367
Gestir í gær: 34
Samtals flettingar: 214928
Samtals gestir: 34576
Tölur uppfærðar: 16.4.2024 11:36:56
LÆKJAMÓT  |  531 HVAMMSTANGI - ÍSLAND  |  +354 4512570  | [email protected]