02.02.2012 12:57
Fjórir Þytsfélagar í KS deildinni
Úrtöku fyrir KS deildina lauk í gærkvöldi með góðum árangri hjá okkar manni. Það var ekki laust við tilhlökkun á heimilinu fyrir þessu móti enda alltaf gaman að byrja keppnistímabilið aftur eftir margra vikna hlé.


Fimmtán keppendur tókust á um átta laus sæti. Þrír Þytsfélagar þau Ísólfur, Fanney Dögg og Elvar Logi tóku þátt í þessa úrtöku og komust öll inn. Verða því fjórir Þytsfélagar í KS deildinni í ár en auk þessara þriggja er Tryggvi Björnsson með sæti í deildinni. Það er því nokkuð ljóst að sætaferðir verða í vetur úr Húnavatnssýslunni, til að fylgjast með KS deildinni, enda Þytsfélagar sérstaklega duglegir að styðja við bakið á sínu fólki


Öll úrslit kvöldsins má t.d sjá á heimasíðu hestablaðsins hér. Ísólfur sem keppti á þeim Kristófer frá Hjaltastaðahvammi og Kvaran frá Lækjamóti gekk nokkuð vel, sigraði fimmganginn og varð annar í fjórgangi. Kristófer og Kvaran eru báðir efnilegir keppnishestar sem verður gaman að fylgjast með hvernig þróast á þessu ári.
Kvaran frá Lækjamóti og Ísólfur sigruðu fimmganginn með glæsibrag og hlutu 6,60
Kristófer frá Hjaltastaðahvammi og Ísólfur urðu í 2.sæti í fjórgangi með 6,40
Návist frá Lækjamóti og Elvar Logi tóku vel á því í fimmgangi. Logi varð samanlagt í 6.sæti á úrtökunni.
Stóðhesturinn Grettir frá Grafarkoti og Fanney Dögg kepptu í fjórgangi og urðu þar í þriðja sæti með 6,37 í einkunn. Fanney varð samanlagt í 7.sæti.
Það er alltaf gaman þegar keppnistímabilið byrjar aftur og verður vonandi mikið fjör í vetur. Næsta mót á dagskrá er fjórgangur í Húnvetnsku liðakeppninni sem byrjar 17.febrúar nk. Svo er fjórgangur KS deildarinnar 22. febrúar svo það er nóg framundan

Skrifað af Lækjamót
Flettingar í dag: 1895
Gestir í dag: 470
Flettingar í gær: 1029
Gestir í gær: 21
Samtals flettingar: 1034558
Samtals gestir: 74789
Tölur uppfærðar: 6.3.2026 15:38:44
LÆKJAMÓT | 531 HVAMMSTANGI -
ÍSLAND | +354 4512570 | [email protected]