17.07.2011 14:46
Elvar og Kóngur frá Lækjamóti íslandsmeistarar!
Elvar Einarsson og Kolfinnssonurinn Kóngur frá Lækjamóti urðu í gær íslandsmeistarar í 250m skeiði. Þeir fóru seinni sprettinn á tímanum 21,89 sek sem er tími undir gildandi íslandsmeti! Það á þó eftir að fá staðfest hvort um íslandsmet sé að ræða en við bíðum spennt eftir fregnum af því. Þeir félagarnir tóku einnig þátt í 100m flugskeiði og urðu þar í öðru sæti á tímanum 7,65 sek. Glæsilegur árangur og óskum við þeim innilega til hamingju!

Mynd/ S.Fjóla: Elvar kampakátur með titilinn og þennan frábæra tíma Mynd/ Kolla Gr.: Kóngur frá Lækjamóti

Mynd/ S.Fjóla: Elvar kampakátur með titilinn og þennan frábæra tíma Mynd/ Kolla Gr.: Kóngur frá Lækjamóti
Skrifað af Lækjamót
Flettingar í dag: 303
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 1189
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 1349702
Samtals gestir: 80353
Tölur uppfærðar: 21.9.2026 04:14:43
LÆKJAMÓT | 531 HVAMMSTANGI -
ÍSLAND | +354 4512570 | [email protected]