22.04.2011 10:05

Góðir gestir á Lækjamóti, hundar og fálkar

Nú er dýralífið að vakna sem merkir að sumarið er á næsta leyti. Álftarparið er komið á tjörnina með tilheyrandi gargi sem berst inn um gluggana :) einnig eru mættir á svæðið fuglar eins og endur, gæsir, stelkir, hrossagaukar, lóur og fálkinn okkar sem situr virðulegur á Miðdegishólnum fyrir aftan húsið okkar.




Fálkinn flýgur fram hjá Lækjamótsbænum


Það eru fleiri dýr í sveitinni þar sem Orka hundurinn þeirra Dæju og Óla kom með þeim í heimsókn og á sama tíma hefur Asja hennar Þórönnu verið í pössun og voru þær glaðar að hittast og leika sér í sveitinni.

dúllurnar Orka og Asja


Asja að boxa Orku...
Flettingar í dag: 617
Gestir í dag: 23
Flettingar í gær: 2254
Gestir í gær: 10
Samtals flettingar: 1106330
Samtals gestir: 76047
Tölur uppfærðar: 14.4.2026 14:08:22
LÆKJAMÓT  |  531 HVAMMSTANGI - ÍSLAND  |  +354 4512570  | [email protected]