30.01.2014 13:05

Lið Lækjamóts.is í Meistaradeild Norðurlands fullskipað

 
 

 

Sölvi Sigurðsson með alhliðahestinn Starkarð frá Stóru Gröf Ytri.


Í ár er gerð breyting á fyrirkomulagi Meistaradeildar Norðurlands þannig að auk einstaklingskeppni er liðakeppni. Sex efstu knapar Meistardeildarinnar 2013 eru liðstjórar og velja þeir með sér einn liðsmann. Þriðji liðsfélaginn var svo dreginn í lið eftir úrtöku sem fór fram í gærkvöldi í Svaðastaðahöllinni. Efstur á úrtökunni í gær var Sölvi Sigurðsson en keppt var í fjórgangi og fimmgangi.  Dróst hann í lið Lækjamóts.is sem er þá skipað þeim Ísólfi, Vigdísi og Sölva. Þetta er frumraun Vigdísar í Meistardeildinni sem er svo heppin að geta leitað ráða hjá reynsluboltunum Ísólfi og Sölva. 

Fyrsta mót KS deildarinnar er 26.febrúar en þá er keppt í fjórgangi. Það er því ennþá tími til að undirbúa sig fyrir þessa skemmtilegu keppni. 


Keppendur og liðskipting í Meistaradeild Norðurlands 2014 er þannig:

Top Reiter – Syðra Skörðugil 

  • Elvar E. Einarsson
  • Tryggvi Björnsson
  • Baldvin Ari Guðlaugsson

Weierholz

  • Bjarni Jónasson
  • Sigvaldi Guðmundsson
  • Jóhann Magnússon

Laekjamot.is

  • Ísólfur Líndal Þórisson
  • Vigdís Gunnarsdóttir
  • Sölvi Sigurðarson

Hrímnir 

  • Þórarinn Eymundsson
  • Líney María Hjálmarsdóttir
  • Hörður Óli Sæmundsson

Draupnir – Þúfur 

  • Mette Mannseth
  • Gísli Gíslason
  • Arnar Bjarki Sigurðarson

Björg – Fákasport

  • Viðar Bragason
  • Þorbjörn H. Matthíasson -
  • Hlín M. Jóhannesdóttir
Flettingar í dag: 29
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 561
Gestir í gær: 86
Samtals flettingar: 219004
Samtals gestir: 35391
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 02:10:16
LÆKJAMÓT  |  531 HVAMMSTANGI - ÍSLAND  |  +354 4512570  | [email protected]