Þjónusta í boði
Hafið samband á laekjamot@laekjamot.is
Tamningar og þjálfun: Fjölskyldan býr yfir mikilli reynslu í tamningum og þjálfun. Tamningaðferðirnar eru byggðar á forsendum hestsins. Frumtamningakennarar við Háskólann á Hólum eru í Lækjamótsfjölskyldunni. Þjálfum og undirbúum hross fyrir sýningar. Tökum einnig að okkur fortamningar sem er undirbúningur ungviðisins fyrir hina eiginlegu frumtamningu.
Reiðkennsla innanlands og erlendis: Fjórir aðilar innan fjölskyldunnar hafa reiðkennara og/eða leiðbeinendaréttindi frá Hólaskóla. Fagmennska og reynsla. Einnig er hægt að hafa samband við okkur varðandi sýnikennslur og/eða fyrirlestra.
Hagaganga: Lækjamót er grasmikil jörð. Við tökum að okkur uppeldi á ungviði og stóðhestavörslu, einnig er hægt að geyma hjá okkur ræktunarhryssur með möguleika á fullri þjónustu.
Kaup og sala: Seljum hross úr eigin ræktun, tamin sem og ótamin. Aðstoðum einnig við að finna draumahest viðskiptavina. Kaupum og endurseljum valin hross.
