Ræktunarmarkmið okkar að Lækjamóti er að rækta geðgóðan, hágengan íslenskan gæðing.


Hryssur í ræktun:

Truflun frá Bakka IS2005265035


F: Þytur frá Neðra-Seli

M: Krumma frá Bakka

Truflun er 1.verðlauna alhliðahryssa þar sem skeiðið er hennar aðall. Fyrir það hlaut hún 8.5. Truflun er með 9 fyrir fótagerð.


Hrönn frá Leysingjastöðum II IS2004256301

F: Stígandi frá Leysingjastöðum II

M: Þóra frá Leysingjastöðum II

Hrönn er 1.verðl. jafnvíg og sérstaklega geðgóð alhliðahryssa. Hlaut m.a 8,5 fyrir skeið í kynbótadómi.


Björk frá Lækjamóti IS2003255101

F: Stígandi frá Leysingjastöðum II

M: Rauðhetta frá Lækjamóti

Björk er hágeng og rúm klárhryssa með 8,5 fyrir tölt og fegurð í reið í kynbótadómi.


Rödd frá Lækjamóti IS2001255103

F: Hágangur frá Narfastöðum

M: Sjöfn frá Miðsitju

Rödd er 1.verðl. fasmikil alhliðahryssa, sérstaklega faxprúð.


Rán frá Lækjamóti IS2000255105


F: Skorri frá Blönduósi

M: Toppa frá Lækjamóti

Rán er 1.verðl. alhliðahryssa myndarleg með mikið og gott skeið. Hlaut m.a 9 fyrir skeið og vilja og geðslag í kynbótadómi.


Dagrós frá Stangarholti IS1999236512

F: Kapall frá Hofsstöðum

M: Rósamunda frá Kleifum

Dagrós er viljug og hágeng klárhryssa. Hún hlaut 8,5 fyrir tölt, brokk, vilja&geðslag og fegurð í reið og 9 fyrir hægt tölt í kynbótadómi.

Elding frá Stokkhólma IS1997258990


F: Biskup frá Hólum

M: Stokkhólma-Grána frá Stokkhólma

Jafnvíg alhliðahryssa sem hefur hlotið 1.verðlaun bæði fyrir byggingu og hæfileika.


Gildra frá Lækjamóti IS1996255109

F: Andvari frá Ey

M: Von frá Stekkjarholti

Gildra er geðgóður, hágengur og mjúkur töltari. Ósýnd vegna meiðsla. Afkvæmin lofa góðu.


Valdís frá Blesastöðum IS1996287806

F: Sproti frá Hæli

M: Vaka frá Ytra-Skörðugili

Valdís er geðgóð og hágeng klárhryssa.


Kosning frá Ytri-Reykjum IS1994255511


F: Ljúfur frá Torfunesi

FF: Baldur frá Bakka

M: Líf frá Syðri-Reykjum

Kosning er myndarleg, viljug klárhryssa með góðar grunngangtegundir.



Breyting frá Lækjamóti IS1992255109

F: Glaður frá Sauðárkróki

M: Hálftamda-Brúnka frá Lækjamóti

Breyting er viljug alhliðahryssa sem náði góðum árangri í töltkeppnum.


Rauðhetta frá Lækjamóti IS1992255101

F: Kolfinnur frá Kjarnholtum

M: Sjöfn frá Miðsitju

Rauðhetta er viljug og geðgóð 1. verðl. alhliðahryssa. Hlaut m.a 8,5 fyrir tölt, háls/herðar/bóga og bak og lend í kynbótadómi. Afkvæmi Rauðhettu eru afar skemmtileg og hefur hún skilað góðum hrossum.


Jarlhetta frá Neðra-Ási IS1991258276

F: Sókron frá Hóli

M: Blanda frá Neðra-Ási

Hágeng og viljug alhliðahryssa. Hefur náð góðum árangri í töltkeppnum.


Toppa frá Lækjamóti IS1991255103

F: Stígur frá Kjartansstöðum

M: Kúfa frá Lækjamóti

Toppa er alhliðahryssa með góðan árangur í 5-gangi. Sérlega faxprúð, hlaut 8,5 fyrir skeið og vilja&geðslag í kynbótadómi. Toppa hefur gefið góð afkvæmi og þar á meðal eina 1.verðlauna hryssu.


Öld frá Lækjamóti IS1990255110

F: Angi frá Laugarvatni

M: Þoka frá Bálkastöðum

Öld er alhliðahryssa með 1.verðl. fyrir hæfileika, hlaut m.a 8,5 fyrir brokk og vilja í kynbótadómi. Náði mjög góðum árangri sem keppnishestur í barnaflokk.


Von frá Stekkjarholti IS1986257987

F: Brúnblesi frá Hoftúnum

M: Brúnblesa frá Þverholtum

Einstaklega hágeng klárhryssa með tölti. Hlaut m.a 8,5 fyrir brokk og geðslag í dómi. Afkvæmi Vonar eru einkar frambærileg með gott geðslag. Nú þegar eru komin þrjú 1.verðl. afkvæmi undan Von.


Eftirtaldar hryssur fara allar undir unga en álitlega stóðhesta og eru afkvæmin sett á undan þeim ef þau þykja álitleg.

Aþena, Þyrla, Lokka, Spyrna.


Flettingar í dag: 75
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 230
Gestir í gær: 73
Samtals flettingar: 276286
Samtals gestir: 78578
Tölur uppfærðar: 20.5.2012 07:07:17
LÆKJAMÓT  |  531 HVAMMSTANGI - ÍSLAND  |  +354 4512570  | laekjamot@laekjamot.is