09.02.2014 18:01

Gæðingafimi VÍS og fjórgangur í Húnvetnsku

Annað keppniskvöld Meistaradeildar VÍS lauk í síðustu viku þar sem fram fór Gæðingafimi. Ísólfur keppti þar á Freyði frá Leysingjastöðum II. Þeir áttu kraftmikla sýningu þar sem hæfileikar Freyðis fengu að njóta sín og urðu þeir í 7.sæti. Guðmar Þór fékk Gulltopp frá Þjóðólfshaga lánaðann, áttu þeir fallega sýningu saman þar sem Gulltoppur sýndi lipurð sýna og mýkt undir frábærri stjórn Guðmars. Þeir urðu í 12.sæti. 

Ísólfur hefur aldrei keppt áður í þessari grein en fannst hún mjög skemmtileg. Við myndum vilja sjá oftar keppt í Gæðingafimi á Íslandi en hún reynir mikið á samspil manns og hests auk þess að hæfileikar íslenska gæðingsins fá að njóta sín.

 

 Eftir tvær greinar af átta í Meistaradeild VÍS er Ísólfur í 3.sæti í einstaklingskeppninni með 11 stig og lið hans Spónn.is/Heimahagi í 5.sæti.

 Næsta grein er fimmgangur sem fer fram 20. febrúar. 

LIÐAKEPPNI

1.Top Reiter/Sólning 106
2.Hrímnir/Export hestar 95,5
3.Gangmyllan 87
4.Auðsholtshjáleiga 84,5
5.Spónn.is/Heimahagi 67
6.Ganghestar/Málning 62
7.Lýsi 54
8.Árbakki/Hestvit 44

EINSTAKLINGSKEPPNI
1.Olil Amble 22
2.Ólafur B. Ásgeirsson 12
3.Ísólfur Líndal Þórisson 11
4.Þorvaldur Árni Þorvaldsson 10
5.Guðmundur Björgvinsson 9
6.Eyjólfur Þorsteinsson 8
7.Eyrún Ýr Pálsdóttir 8
8.Sylvía Sigurbjörnsdóttir 8
9.Jakob S. Sigurðsson 7
10.Árni Björn Pálsson 6
11.Viðar Ingólfsson 4,5
12.Þórdís Erla Gunnarsdóttir 4,5
13.Sigurður V. Matthíasson 3
14.Bergur Jónsson 2
15.Hulda Gústafsdóttir 1

 

Eftir að heim var komið tók við næsta mót sem var Húnvetnska liðakeppnin. Keppt var í fjórgangi. Veðrið var leiðinlegt, mikið rok og slydda sem gerði það að verkum að ekki var hægt hita upp úti. Var brugðið á það ráð að gefa nokkrar mínútur fyrir hvern flokk til að keppendur gætu hitað upp inni. 

Ísólfur keppti á Kappa frá Kommu. Kappi er lítið reyndur sem keppnishestur en við erum mjög ánægð með hvernig hann tókst á við þetta verkefni, hann var aðeins óöruggur með sig í forkeppninni en sýndi flotta takta og hlökkum við til að sjá hvernig hann þróast áfram. Ísólfur og Kappi fóru í b-úrslit og unnu þau og gerðu sér svo lítið fyrir og sigruðu a-úrslitin líka. Vigdís keppti á Sögn frá Lækjamóti og enduðu þær í 3. sæti á eftir Fanney og Brúney frá Grafarkoti og Ísólfi og Kappa frá Kommu. Í 4.sæti urðu þau James og Eyvör frá Lækjamóti og í 5.sæti urðu Herdís og Grettir frá Grafarkoti. 

 

A úrslit í 1. flokki

1. Ísólfur Líndal og Kappi frá Kommu   5,97/6,75 (komu upp úr b-úrslitum)

2. Fanney Dögg og Brúney frá Grafarkoti  6,83/6,75

3. Vigdís Gunnarsdóttir og Sögn frá Lækjamóti  6,33/6,67

4. James Faulkner og Eyvör frá Lækjamóti  6,33/6,38

5. Herdís Einarsdóttir og Grettir frá Grafarkoti 6,37/6,08

 

Flettingar í dag: 453
Gestir í dag: 81
Flettingar í gær: 261
Gestir í gær: 66
Samtals flettingar: 218867
Samtals gestir: 35378
Tölur uppfærðar: 25.4.2024 19:30:09
LÆKJAMÓT  |  531 HVAMMSTANGI - ÍSLAND  |  +354 4512570  | [email protected]